top of page

Þakfrágangur

Reynslumikið og sérþjálfað teymi sér um hvers konar þakfrágang og þakpappalögn samkvæmt fyrirskrifuðu kerfi framleiðanda. Atlasverktakar vinna með gæða þakefni frá Nexler sem unnið er af fagmönnum. Nexler þakefnið er margpófað efni sem hefur verið notað í m.a. stærstu byggingarframkvæmdir á íslandi þar sem mikið liggur undir í gæðum og endingu. Atlasverktar hafa lagt þakpappa frá Nexler á tugi þúsunda fermetra á Íslandi.

Utanhúss frágangur

Við leggjum okkur fram við að skila gæðafrágangi samkvæmt kröfum verkkaupa og kerfis framleiðanda. Gott skipulag, efnisnýting, gæði og öryggi eru mikilvægir þættir til að tryggja endingargóðan frágang á utanhúsklæðningum.
 

  • Klæðningar

  • Glugga ísetningar

  • Hurða ísetningar

Jarðvegsvinna

Fyrirtækið sér um jarðvegsvinnu allt frá mokstri grunna og til loka frágangs lóða. 

  • Múrbrot 

  • Steinsögun

  • Kjarnaborun

  • Jarðvinna og niðurrif

Stálgrindarhús

Reynsla og skipulag er einn mikilvægast þáttturinn í velheppnuðu  samsetningar verkefni og bjóðum við upp á hvort tveggja í þeim verkefnum sem við tökum að okkur.

Innanhúss frágangur

Fyrirtækið sinnir öllum frágangi sem snýr að innanhúss innviðum og má þar nefna parketlagnir, milliveggi, hurða ísetningar, uppsetningu á eldhúsi, baðherbergjum og ýmislegt fleira. Fyrirtækið vinnur í nánu samstarfi við undirverktaka á sviðum pípulagninga, rafverktaka, múrara ofl.
 

  • Parketlagnir

  • Milli veggir

  • Innanhús hurða ísetningar

  • Eldhús

  • Baðherbergi

Viðhald og viðgerðir

Fyrirtækið sér um viðhald og viðgerðir á víðtæku sviði, bæði utan- og innanhús.

Byggingastjórn

Hjá fyrirtækinu starfa byggingastjórar og iðnmeistarar og er unnið eftir samþykktu gæðakerfi. Í framkvæmdum á vegum Atlas Verktaka eru gerðar reglulegar úttektir til að tryggja gæði og koma í veg fyrir ágalla. Starfsmönnum til aðstoðar við vinnslu gæðakerfis notar fyrirtækið Ajour system.

Verkefnastýring

Verkstjórar sjá um almenna verkefnastýringu og gæðaeftirlit yfir hinum ýmsu verkefnum. Fyrirtækið hefur 9 sérþjálfaða verkstjóra í sínu teymi sem sjá til þess að gæði, öryggi og gott skipulag sé í forgrunni hvers verkefnis fyrir sig.

bottom of page